TOSKA fríkar út – jólatónleikar
TOSKA fríkar út snýr aftur, og í þetta sinn eru það jólin sem fá að kenna á því!
Nemendur á öllum aldri og kennarar Tónlistarskólans á Akranesi stíga saman á svið í Tónbergi og flytja jólalög, gömul, ný og alveg tryllt. Þar mætast söngvarar, hljómsveitir, trommur, harmonikur og allt þar á milli í kraftmikilli jólaveislu sem allur skólinn tekur þátt í.
Þetta eru tónleikar sem enginn ætti að missa af, hvort sem þú þekkir einhvern á sviðinu eða langar einfaldlega að komast í jólaskap með frábæru tónlistarfólki úr heimabyggð.
Kynnir er Sigrún Ósk Kristjánsdóttir.
Hvenær: Fimmtudaginn 3. desember
Tvennir tónleikar: kl. 17:00 og kl. 20:00 (sama dagskrá á báðum)
Hvar: Tónberg, Dalbraut 1, Akranesi
Miðaverð: 3.500 kr.
Miðar fást hér og á skrifstofu Tónlistarskólans.
#toskafríkarút
Events
Tónberg, Dalbraut 1, 300 Akranes
Thursday
17:00
3.500 kr.
Tónberg, Dalbraut 1, 300 Akranes
Thursday
20:00
3.500 kr.