Hverafugl - CAPUT: Hróðmar og afleggjarar
CAPUT kemur fram á tónlistarhátíðinni Hverafugl föstudaginn 26. júní kl. 20:00 í sal Grunnskólans í Hveragerði.
Á tónleikunum flytur CAPUT verkið Stokkseyri eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson. Ljóð eru eftir Ísak Harðarson. Flytjendur eru CAPUT undir stjórn Guðna Franzsonar og Svanlaug Jóhannsdóttir, mezzosópran. Einnig munu hljóma verk eftir nemendur Hróðmars, þ.m.t. verk eftir Báru Gísladóttur, Gísla Magnússon, Herdísi Stefánsdóttur og Snorra Hallgrímsson en hann mun einnig leika með á píanó í sínu verki.
Tónleikarnir bjóða upp á fjölbreytta efnisskrá samtímatónlistar þar sem ólík tónmál, stemningar og listrænar nálganir mætast í flutningi eins öflugasta samtímatónlistarhóps landsins.
Efnisskrá:
Gísli Magnússon: Draumsýn
Herdís Stefánsdóttir: Verbúðin
Snorri Hallgrímsson: The Girl in the Dark
Bára Gísladóttir: the worlds within our petty voids
Hlé
Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson: Stokkseyri
Miðaverð:
Almennt miðaverð: 4.500 kr.
Nemar, eldri borgarar og öryrkjar: 3.000 kr.
Frekari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar má nálgast á vefsíðunni:
https://www.hverafugl.com/dagskra-2026
Hverafugl er styrkt af Tónlistarsjóði, Uppbyggingarsjóði Suðurlands, Hveragerðisbæ, Hótel Örk og Kjörís.