Drag Bröns
Hæ elskurnar fyrir Norðan!
Við drottningarnar erum að koma til Akureyrar og verðum með Brönsinn okkar á Múlabergi. Við getum ekki beðið eftir að sjá ykkur!
Takið með ykkur vini, vinkonur, elskhuga, saumaklúbbinn, gæsapartýið, ömmu eða your special one – eeeða mætið bara sjálf með sjálfsástina í handfarangrinum!
Við verðum að vanda með glamúr-overdose, glimmer í loftinu og á hæstu hælum. Það verða auðvitað fullt af atriðum, stuð og partý.
Bröns
Í boði er hægt að velja á milli vegan og ekki-vegan bröns.
Dagskrá
Húsið opnar: 12:30
Showtime: 13:00
Um 2 klukkustundir af drag-dýrð, með hléum til að anda, skála og dást.
Hjólastólaaðgengi er í húsinu.
Tryggið ykkur miða í tæka tíð!
Þetta verður bröns sem þið viljið ekki missa af!