Drag Show Akureyri
HENTU AF ÞÉR SVUNTUNNI, ELSKAN!
Drottningarnar mæta norður korter í jól!
🎄 JÓLA DRAG SHOW – KVÖLDSÝNING
📍 Múlaberg, Akureyri
📅 Laugardagur 19. desember
🕤 Sýningin hefst kl. 21:00
Er stressið í hámarki og smákökusortirnar enn óbakaðar? Who cares! Hver nennir að standa sveittur yfir piparkökudeigi á laugardagskvöldi þegar hægt er að horfa á óþekkar dragdrottningar hrista upp í jólunum?
Hentu af þér svuntunni, gleymdu jólahreingerningunni og mættu á kvöld þar sem jólakúlur mæta diskókúlum!
Drottningarnar koma norður með glamúrinn, glimmerið og hælana í hæstu hæðum. Við lofum sjóðheitri blöndu af drag-dýrð, dívustælum, drama, hlátri og dassi af jólaóþekkt!
DAGSKRÁ
Um tveggja klukkustunda sýning full af drag-dýrð, hlátri, skálum og hátíðlegu stuði, með stuttum hléum til að ná andanum og laga varalitinn.
MIÐAR OG UPPLÝSINGAR
- Miðaverð: 3.900 kr.
- 20 ára aldurstakmark
- Hjólastólaaðgengi er í húsinu
Sjáumst undir mistilteininum, Akureyri! 💋✨