Ferðalag hugmyndanna með Hlédísi Maren og Ivu Adrichem
📅 Föstudagur 24. apríl
🕔 Kl. 17:00
📍 Fantasía, viðburðasalur Vinnustofu Kjarvals, Austurstræti 10, Reykjavík (sérinngangur hægra megin við aðalingang Kjarvals)
💳 Miðaverð: 3.900 kr.
Paradigm stendur fyrir viðburðaröð sem kallast Ferðalag hugmyndanna, þar sem markmiðið er að veita innsýn í hugmyndafræðilega gerjun hjá fólki, orsakir hennar og afleiðingar. Fyrsti viðburðurinn í röðinni er með tveimur ungum konum sem hvor í sínu lagi hafa vakið mikla athygli fyrir sjónarmið sín: annars vegar Hlédís Maren Guðmundsdóttir, félagsfræðingur og pistlahöfundur, og hins vegar Iva Maren Adrichem, lögfræðingur og söngkona.
Bakgrunnur bæði Hlédísar og Ivu í stjórnmálum er í mannréttindabaráttu á vinstri vængnum, en þær hafa báðar sett spurningamerki við ýmislegt í svonefndri „vók hugmyndafræði“ og jafnframt varið tjáningarfrelsið á hátt sem lengi hefur einkennt frjálslynt fólk, en á nú undir högg að sækja.
Hlédís mun í erindi sínu ræða hvernig hún hefur mótast hugmyndafræðilega, með áherslu á viðhorf sín til mannréttinda og einstaklingsfrelsis.
Iva mun í erindi sínu fara yfir farinn veg og skýra viðhorf sín í málum sem hafa valdið fjaðrafoki, einkum afstöðu sína til kynbundinna réttinda og gagnrýni sína á tiltekna markaðsvæðingu sem hefur orðið í réttindabaráttu viðkvæmra minnihlutahópa og löggjöf sem hefur þann tilgang að veita slíkum hópum aukna vernd.
Hlédís og Iva munu sitja fyrir svörum að erindum loknum, þar sem fundargestum gefst færi á að spyrja spurninga.
Viðburðurinn fer fram í Fantasíu, viðburðasal Vinnustofu Kjarvals, í notalegu og skapandi umhverfi í hjarta Reykjavíkur. Hægt verður að kaupa hressingu á barnum og hefja föstudagskvöld í miðbænum á viðburði sem er til þess fallinn að vekja fólk til umhugsunar um lífið og tíðarandann.
🎟 Takmarkaður fjöldi miða — tryggðu þér miða í tíma.