Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Queue illustration

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 sekúndur

Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Senda mér nýtt lykilorð!

GOLF EXPO. 7. og 8. mars 2026

GOLF EXPO. 7. og 8. mars 2026

07.03.2026 11:00
Laugardalshöllin, Engjavegur 8, 104 Reykjavík

7.–8. mars 2026 | Laugardalshöll | kl. 11:00–17:00 báða daganna

Golf Expo 2026 er tveggja daga golfveisla fyrir alla – hvort sem þú ert með lága forgjöf eða nýbúin/n að taka fyrstu sveifluna.
Keyptur miði gildir báða daganna og veitir fullt aðgengi að fyrirlestrum, kynningum, sýningarsvæði og allri dagskrá helgarinnar.

🎁 1.000.000 kr. happdrætti: Ertu með?

Allir miðakaupendur fara sjálfkrafa í pottinn!
Heppnir gestir vinna inneignir og gjafabréf frá vel völdum sýnendum, og stærsti vinningurinn er að verðmæti 1 milljón króna.
Stærsti vinningurinn verður dreginn úr pottinum á lokadegi sýningarinnar undir stjórn forseta GSÍ.

Hvað bíður þín?

  • Nýjasti golfbúnaðurinn og fatnaðurinn
  • Golfhermar og tækni til að prófa á staðnum
  • Ráðgjöf frá golfkennurum fyrir byrjendur og lengra komna
  • Golfklúbbar, golfpakkaferðir og spennandi áfangastaðir
  • Heilsa, líkamsrækt, næring og endurheimt fyrir kylfinga
  • Nýjungar í farartækjum og umhverfisvænni tækni
  • Sérsniðnar tryggingalausnir fyrir kylfinga

Þetta er staðurinn þar sem golfáhugafólk hittist, fær innblástur og kveikir á sér fyrir golfsumarið framundan.

Hvort sem þú ert að leita að nýjum kylfum, betri sveiflu eða næstu golfferð, þá finnurðu það á Golf Expo 2026.

🎟️ Tryggðu þér miða og vertu með, kannski gengur þú út með milljón í vasanum.