Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Queue illustration

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 sekúndur

Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Senda mér nýtt lykilorð!

NÝTT
Hljómey - 2026

Hljómey - 2026

24.04.2026 19:30
Heimahús í miðbæ Vestmannaeyja

Tónlistarhátíðin Hljómey er haldin síðasta föstudag í apríl ár hvert í ýmsum stofum og húsakynnum í miðbæ Vestmannaeyja. Hátíðin var fyrst haldin árið 2023 þar sem 15 flytjendur komu fram, af þeim voru 8 úr Vestmannaeyju og var hátíðin haldin í 10 heimahúsum. Árið 2024 voru listamennirnir 14 í 10 heimahúsum. Á fyrstu tveimur hátíðunum voru gestir um 300 talsins. Árið 2025 var hátíðin haldin í 15 heimahúsum með 15 listamönnum og voru gestir hátíðarinnar um 500 talsins.

Miðasala á hátíðina fer fram í febrúar ár hvert og byrjað er að kynna listamenn í lok janúar ár hvert. Uppselt hefur verið á allar hátíðirnar hingað til. Gestir fá afhent armbönd gegn framvísum miða og rölta þeir á milli húsa og sjá þá listamenn sem þeir kjósa hverju sinni. 

Dagskráin er gefin út skömmu fyrir hátíðina og má ætla að gestir geti séð allt upp í fjóra til fimm listamenn yfir kvöldið, með dugnaði. Kvöldið endar svo fyrir utan Brothers Brewery þar sem brennukóngurinn kveikir bál og við syngjum hátíðina á enda.

Mikilvægt er að fylgja FACEBOOK síðu hátíðarinnar þar sem allar tilkynningar eru birtar, m.a. hvaða listamenn spila á hátíðinni.

Þegar kynntir listamenn eru: Sigurður Guðmundsson, Páll Óskar Hjálmtýsson og Kristmundur Axel.