Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Queue illustration

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 sekúndur

Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Senda mér nýtt lykilorð!

NÝTT
Frítt inn á RÖKKUR og DAG SIGURÐS

Frítt inn á RÖKKUR og DAG SIGURÐS

18.07.2026 17:00
Hús Máls og Menningar, Laugavegur 18, 101 Reykjavík

RÖKKUR með Dag Sigurðssyni
Classic Rock og Bluesrock í Mál og Menningu
Rokksveitin Rökkur fær til liðs við sig gestasöngvarann Dag Sigurðsson á kraftmiklum síðdegistónleikum þar sem sígilt rokk og bluesrock verða í aðalhlutverki.
Á efnisskránni eru ódauðleg lög frá nokkrum af stærstu nöfnum rokksögunnar, þar á meðal Deep Purple, Led Zeppelin, AC/DC, Eric Clapton, Gov’t Mule, Jeff Beck, Gary Moore og The Meters. Einnig verða flutt valin íslensk rokklög með Trúbrot og Friðryk.
Sönginn leiða Dagur Sigurðsson og Brynjar Freyr Heimisson, aðalsöngvari Rökkurs, ásamt öflugri hljómsveit sem leggur metnað sinn í kraftmikinn, vandaðan og lifandi tónlistarflutning.
Ef þú kannt að meta klassískt rokk, bluesrock, stórkostleg gítarsóló og lög sem hafa staðist tímans tönn, þá eru þetta tónleikar sem þú vilt ekki láta fram hjá þér fara.
Staður: Mál og Menning, Laugavegi 18, Reykjavík
Dagsetning: Laugardagurinn 18. júlí 2026
Húsið opnar: Kl. 10:00
Tónleikar: Kl. 17:00–19:00
Frítt inn
Aðgangur er ókeypis, En viljir þú styðja við tónlistarflutninginn og leggja þitt af mörkum til að gera fleiri tónleika af þessu tagi mögulega, getur þú valið stuðningsmiða að upphæð að eigin vali. Hægt er að kaupa einn eða fleiri stuðningsmiða og rennur allur stuðningur óskiptur til hljómsveitarinnar.
Við hlökkum til að taka á móti þér í síðdegisstund þar sem klassískt rokk, bluesrock og lifandi tónlistarflutningur verða í forgrunni.

Rökkur skipa:

Sigurður Sigurðsson Gìtar

Pétur Pétursson hljómborð 

Herluf Jörgensen Trommur

Rúnar Ingi Guðjónsson Bassi