 
        Konfektnámskeið Halldórs
                                    
                                    17.12.2024 20:15
                                
                                
                                    
                                    Víðjulundi 2,  600 Akureyri
                                
                            Konfektnámskeið Halldórs hafa verið haldin sl. 27 ár og eru alltaf jafn vinsæl. Tilvalin kvöldstund með vinahópum, vinnufélögum, saumaklúbbum eða fyrir einstaklinga vilja læra grunnatriði í konfektgerð.
Hver og einn þátttakandi lærir að búa til sitt eigið konfekt með fyllingu ásamt því að tempra ljóst súkkulaði (mjólkursúkkulaði). Innifalið er kennsla, hráefni og að sjálfsögðu afrakstur kvöldsins til að taka með sér heim.
Námskeiðið tekur um 2 klst og leiðbeinandi er Halldór Kr. Sigurðsson, konditor og bakari.
Á námskeiðinu er einnig hægt að kaupa súkkulaði til frekari heimaframleiðslu. Námskeiðið er haldið á Akureyri að Víðilundi 2.
