dEUS │ Worst Case Versus In a Bar
dEUS á Íslandi
Belgíska hljómsveitin dEUS mun leika á sérstökum tónleikum í Austurbæjarbíói 2. október næstkomandi og flytja efni af fyrstu tveimur plötum sveitarinnar, Worst Case Scenario (1994) og In a Bar, Under the Sea (1996).
Tónleikarnir eru hluti af sérstakri tónleikaferð sem ber heitið Worst Case Versus In A Bar, en dEUS hefur ferðast til útvaldra borga í Evrópu það sem af er ári. Reykjavík verður síðasti viðkomustaðurinn á tónleikaferðalaginu.
Á dagskránni verða helstu lög platnanna tveggja, auk laga sem hafa aldrei áður verið flutt á tónleikum. Þetta er því ekki aðeins nostalgíuferð heldur endurvakning tveggja platna sem hljóma enn jafn ferskar, kraftmiklar og tímalausar og þegar þær komu út.
dEUS eru: Tom Barman, Klaas Janzoons, Stephane Misseghers, Alan Gevaert og Simen Følstad Nilsen.
Hljómsveitin Ensími sér um upphitun, en hún fagnar 30 ára starfsafmæli á þessu ári.
Opnað verður á almenna sölu 20. ágúst kl. 10:00.
Miðaverði verður stillt í hóf.
Aldurstakmark: 18 ár.