Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Queue illustration

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 sekúndur

Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Senda mér nýtt lykilorð!

Seldu miða og stýrðu viðburðum með MidiX

 Seldu miða og stýrðu viðburðum með MidiX 

MidiX er íslenskt sölu-, skráningar- og aðgangskerfi sem gerir viðburðahöld einfaldari, sveigjanlegri og skilvirkari.

Hvort sem um er að ræða tónleika, ráðstefnu, sýningu, námskeið, íþróttaviðburð eða aðra upplifun færðu með MidiX verkfæri til að halda utan um allt ferlið – frá uppsetningu og sölu yfir í samskipti við gesti, miðaskönnun og uppgjör.

Allt sem þú þarft í einu kerfi

🎟 Einföld uppsetning viðburða

Við hjálpum þér að koma viðburðinum í sölu hratt og örugglega.

Viðburðahaldarar fá aðgang að MidiX stjórnkerfinu þar sem hægt er að stofna og breyta viðburðum, fylgjast með sölu, stjórna framboði og halda utan um allar helstu upplýsingar.

📊 Full stjórn á sölu og skráningum

Með MidiX getur þú:

🪑 Sætaplan og uppsetning

MidiX styður bæði númeruð og ónúmeruð sæti.

Við aðstoðum við uppsetningu á sætaplani og sal þegar þess er þörf og leggjum áherslu á að kaupferlið sé einfalt og skýrt fyrir gesti.

📱 Stafrænir miðar

Gestir geta vistað miðana sína beint í:

Þannig eru miðarnir alltaf aðgengilegir og einfaldir í notkun.

📲 Hröð og einföld innritun

Með MidiX Admin App getur viðburðahaldari:

💬 Persónuleg þjónusta

MidiX leggur mikla áherslu á persónulega og hraða þjónustu bæði við viðburðahaldara og miðakaupendur.

Þjónusta við miðakaupendur er í boði alla virka daga frá kl. 08:00–19:00 í síma 567-8004.

📣 Aukin sýnileiki fyrir viðburði

MidiX getur stutt við kynningu viðburða í gegnum eigin miðla og samfélagsmiðla.

Einnig geta viðburðahaldarar sett skilaboð, sértilboð eða auglýsingar samstarfsaðila á stafræna miða – án viðbótarkostnaðar.

📈 Mælingar og markaðstól

Hægt er að tengja Google Tag Manager við viðburði og fylgjast þannig með árangri auglýsinga og markaðsstarfs.

🎥 Kennsla og stuðningur

Viðburðahaldarar hafa aðgang að kennslumyndböndum og leiðbeiningum sem auðvelda notkun kerfisins.

Af hverju að velja MidiX?

✅ Íslenskt kerfi og íslensk þjónusta
✅ Miðasala, skráningar og aðgangsstýring í einu kerfi
✅ Númeruð og ónúmeruð sæti
✅ Rauntímayfirlit yfir sölu og aðsókn
✅ Sveigjanleg verðlagning, forsölur og afsláttarkóðar
✅ Stafrænir miðar og einföld skönnun
✅ Lausn fyrir bæði litla og stóra viðburði
✅ Persónuleg þjónusta og hraður stuðningur

Tilbúin(n) að setja viðburðinn í sölu?

Við hjálpum þér að koma viðburðinum af stað hratt og tryggjum að uppsetning, sala og skráningar fari rétt af stað frá upphafi.

Hafðu samband:
📧 omar@midix.is