Drag Bröns Pride
Elskurnar!
Langar ykkur í litríkasta og skemmtilegasta bröns ársins?
Þann 8. ágúst tökum við yfir stóra salinn í Austurbæjarbíó með stórkostlegri dragveislu, dýrindis bröns og þeirri einstöku stemningu sem aðeins Reykjavík Pride getur boðið upp á!
Nokkrar af skærustu stjörnum íslensku dragsenunnar stíga á svið og fylla húsið af PRIDE-andanum! Þetta verður sannkölluð veisla fyrir öll skilningarvit!
Bröns:
Stökk kjúklingalæri og vaffla með hlynssírópi, brakandi kálsalati og ljúffengri dressingu.
Í boði er hægt að velja á milli vegan og ekki-vegan bröns.
Dagskrá:
Húsið opnar kl. 11:00
Sýning hefst kl. 11:30
Við ljúkum dagskrá í síðasta lagi kl. 13:30 svo að við öll komumst tímanlega í Pride-gönguna.
16 ára aldurstakmark
Brönsinn fer að mestu leyti fram á ensku.
Hjólastólaaðgengi er í húsinu.
Takmarkað framboð af miðum á forsöluverði.
Við hlökkum til að fagna PRIDE með ykkur! 🌈