Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Týnt lykilorð?

Extreme Chill Festival 2024

Extreme Chill Festival 2024

02.09.2024 17:00
Miðbær Reykjavíkur, Ýmsir staðir, 101 Reykjavík

Tónlistarhátíðin Extreme Chill fer fram í Reykjavík dagana 2-8 september en þetta er 15.árið sem hátíðin er haldin.

Í ár kemur mikill fjöldi listamanna fram á hátíðinni, Þarna koma saman ólíkir listamenn frá tilraunakenndum listamönnum til klassískrar listamanna. Þ.á.m.

ALESSANDRO CORTINI
FUJI||||||||||TA
MARY LATTIMORE
ERALDO BERNOOCCHI & HOSHIKO YAMANE
MUSEUM OF SOUND (LISTENING ROOM WITH MIKA VAINIO)
CHRISTOPHER CHAPLIN
STEREO HYPNOSIS
HARP & ARP
KIRA KIRA
ÆGIR
+ More TBA

Extreme Chill er hátíð sem setur ávallt markmiðin hærra með hverju ári og hefur nú verið haldin bæði í Berlín og víða um land og hefur líka verið í samstarfi við ýmsar hátíðir bæði hérlendis og erlendis. Markmið hátíðarinnar er að kynna íslenska og erlenda hljóðlistamenn og tengja saman ólík listform, hljóðheim og lifandi myndheim. Hátíðar passinn kostar aðeins 14.900 kr og gildir á alla 7 dagana. 

Miðasala inn á midix.is

"7 daga tónlistarveisla þar sem íslenskir og erlendir listamenn með ólíkan bakgrunn á öllum aldri mætast í sköpun sinni undir áhrifum íslenskrar náttúru. Þetta verður leyndardómsfullt ferðalag um rafræna Reykjavík.”