Fyrr má nú aldeilis
Vortónleikar Karlakórs Kjalnesinga í Langholtskirkju
Karlakór Kjalnesinga heldur sína sívinsælu vortónleika í Langholtskirkju og býður upp á fjölbreytta og skemmtilega tónleikadagskrá. Þar má heyra perlur úr hefðbundinni karlakóratónlist ásamt léttum og fallegum dægurlögum — eins og kórnum er einum lagið.
Tónleikarnir fara fram í hinu einstaka og hljómfagra rými Langholtskirkju þar sem vorstemningin fær að njóta sín til fulls.
Stjórnandi: Lára Pétursdóttir
Hljómsveit:
Kjartan Valdemarsson – píanó
Jón Rafnsson – bassi
Jón Elvar Hafsteinsson – gítar
Benedikt Brynleifsson – trommur
Tímasetningar:
• Fimmtudagur 16. apríl kl. 20:00–22:30
• Laugardagur 18. apríl kl. 16:00–18:30
Staður: Langholtskirkja
Miðaverð: 5.000 kr.
Velkomin í hlýlega vorstemningu og fallega kórtónlist í einstöku umhverfi.
VIÐBURÐIR
Langholtskirkja, Sólheimar 13, 104 Reykjavík
fimmtudaginn
20:00
5.000 kr.
Langholtskirkja, Sólheimar 13, 104 Reykjavík
laugardaginn
16:00
5.000 kr.