Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Týnt lykilorð?

Geirmundur Valtýsson Sing-a-long kvöld -AFLÝST

Geirmundur Valtýsson Sing-a-long kvöld -AFLÝST

22.06.2024 21:00
600 Akureyri, Hafnarstræti

Geirmundur hefur staðið á sviði frá árinu 1958, þegar hann var 14 ára gamall og verið síðan einn afkastamesti tónlistarmaður landsins. 

Hann hefur komið fram á öllum helstu tónlistar- og útihátíðum landsins, og sungið í án efa flestum félagsheimilum og tónleikahúsum landsins.
Geirmundur gaf út sína fyrstu breiðskífu ,,Í syngjandi sveiflu" árið 1989, og síðan eru plöturnar orðnar tólf. Það er óhætt að segja að flestar plötur Geirmundar hafi slegið í gegn, og hefur hann verið duglegur við að koma ungu fólki á framfæri, til dæmis með plötunni ,,Skagfirðingar syngja" árið 2015, þar sem fjöldi ungra Skagfirðinga, ásamt eldri, sungu lög hans.

Nú ætlar hann að mæta með harmonikkuna og hljómborðið ásamt Stefáni Gíslasyni píanóleikara og Valgarði Óla trommara og Finnborga Kjartanssyni bassaleikara að syngja sín allra þekktustu lög með aðstoð fólksins í salnum sem má gjarnan syngja með. Lög eins og Nú er ég léttur, Með vaxandi þrá, Ort í sandinn, Ég syng þennan söng, Lífsdansinn ofl. ofl. ofl.