Gísla saga Einarssonar
Gísla saga Einarssonar
10. júlí kl. 20:00
Kómedíuleikhúsið í Haukadal
Hinn eini sanni landi og landstólpi, Gísli Einarsson, mætir í Haukadal með sínar eigin Gísla sögur.
Gísli hefur verið kærkominn gestur á skjám landsmanna allt frá árinu 2003, þegar hann fór Út og suður. Síðar fór hann í allar áttir með þættinum Landinn, sem hefur notið fádæma vinsælda frá upphafi.
Gísli hefur einnig sett á svið tvo einleiki og nú mætir hann loksins í Kómedíuleikhúsið í Haukadal með sínar einstöku sögur, frásagnargleði og húmor.
Það er næsta víst að þetta verður ekkert leiðinlegt. Hvort þetta verði hrein og bein Gísla taka á hláturkirtlunum er ekki ólíklegt, enda verður Gísli staddur á slóðum nafna síns, Gísla Súra, sem var ekki aðeins mikill kappi heldur einnig góður leikari, rétt eins og landi hans, Gísli Einarsson.
Tryggðu þér miða og komdu í Haukadal á kvöldstund sem lofar góðri skemmtun, hlátri og sannkölluðum Gísla sögum.