Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Týnt lykilorð?

GÓSS

GÓSS

25.07.2024 21:00
600 Akureyri, Hafnarstræti

Hljómsveitin GÓSS (Sigurður Guðmundsson, Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar) heimsækir loksins loksins aftur sinn elskulega Græna hatt.

Hljómsveitin GÓSS hefur slegið í gegn með tónleikum sínum um land allt síðustu ár og er það mikið fagnaðarefni að fá að sjá sveitina aftur eftir nokkurra ára hlé á Græna hattinum.

Á tónleikum GÓSS verður boðið upp á létt og skemmtilegt prógramm þar sem aðalmarkmiðið er að skapa hugljúfa og notalega kvöldstund fyrir tónleikagesti.

Húsið opnar kl. 20:00 og tónleikarnir hefjast kl. 21:00.