Greta Salóme mun halda hátíðlega og fjölbreytta jólatónleika fyrir Grindvíkinga í Hlégarði í Mosfellsbæ þann 17. desember ásamt hljómsveit og gestum.
Aðgangur er ókeypis fyrir alla Grindvíkinga og boðið verður upp á kakó í hléi. Ekkert aldurstakmark er á tónleikana og allir velkomnir.
Sérstakir gestir tónleikanna eru söngvari ársins og leikarinn Björgvin Franz ásamt Júlí Heiðari sem undanfarið hefur stimplað sig rækilega inn á tónlistarsenuna á Íslandi.
Hljómsveit tónleikanna skipa þeir Gunnar Hilmarsson, Óskar Þormarsson og Leifur Gunnarsson. Með Gretu Salóme koma fram söngkonurnar Unnur Birna Björnsdóttir og Lilja Björk Runólfsdóttir