Guðmundur Pétursson á Lemmy
Guðmundur Pétursson heldur tónleika á Lemmy föstudagskvöldið 24. júlí kl. 21:00.
Á tónleikunum verður leikin tónlist af síðustu plötu Guðmundar, Wandering Beings, sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin á síðasta ári. Einnig verður flutt eldri og nýrri tónlist úr smiðju Guðmundar, ásamt völdum gömlum blúslögum.
Guðmundur er einn af okkar fremstu gítarleikurum og býður hér upp á kraftmikla og lifandi tónleika þar sem blús, rokk, djass og persónulegur tónlistarheimur hans mætast á sviðinu.
Hljómsveit
Guðmundur Pétursson, gítar og söngur
Andri Ólafsson, bassi
Kristinn Snær Agnarsson, trommur
Sérstakur gestur
Ragga Gröndal, raddir og hljómborð
Tónleikarnir fara fram á Lemmy, föstudagskvöldið 24. júlí kl. 21:00.