Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Týnt lykilorð?

Helgi og Hljóðfæraleikaranir

Helgi og Hljóðfæraleikaranir

27.07.2024 21:00
Græni Hatturinn, Hafnarstræti, 600 Akureyri

Ást og sigur

Helgi og Hljóðfæraleikararnir gáfu út tónleikaplötuna Ást og sigur á tvöföldum vínil í mars síðastliðnum. Platan inniheldur tónleikaupptökur frá liðnum árum með mörgum af bestu lögum hljómsveitarinnar í gegnum árin.

Eftir velheppnaða tónleika til að halda upp á rokkaða helming plötunnar fyrr á árinu, er komið að seinna skrefinu til að halda upp á nýju plötuna, Ást og sigur. Planið er að fagna Unplugged helmingi plötunnar með útgáfutónleikum á Græna hattinum 27. júlí næstkomandi. Þetta verður einkar eftirminnileg kvöldstund með áherslu á stálið og ljúflegheit.

Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 21. Þá verða nokkur lög flutt af glæsilegu upphitunaratriði, en hulunni verður svipt af því þegar nær dregur tónleikum. Í kjölfarið telur H&H í nokkur lög fram eftir kveldi.