Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Týnt lykilorð?

Hjálmar

Hjálmar

október, 2024

Hjálmar snúa aftur á Græna hattinn til að fagna 20 ára afmæli sveitarinnar 

Um þessar mundir eru 20 ár frá því fyrsta plata Hjálma leit dagsins ljós. Hljóðlega af stað var tekin var upp í Geimsteini í Keflavík. Platan sló rækilega í gegn og skilaði sveitinni Íslensku tónlistarverðlaununum fyrir rokkplötu ársins auk nafnbótarinnar Bjartasta vonin árið 2004. Þessum tímamótum er sveitin að fagna en hún lék tvenna tónleika á Ölveri í Reykjavík í maí fyrir fullu húsi og við frábærar undirtektir. 

Nú er komið að Græna hattinum sem um langt skeið var nokkurs konar heimavöllur Hjálma á Norðurlandi. Tónleikarnir á Græna hattinum verða haldnir dagana 4. og 5. október og er miðasala hafin á MidiX.is. 

Hjálmar eru þekktir fyrir að vera eitt albesta tónleikaband hér á landi og það má því búast við frábærum tónleikum. Sveitina skipa þeir Guðmundur Kristinn Jónsson, Helgi Svavar Helgason, Sigurður Guðmundsson, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson og Þorsteinn Einarsson. 

VIÐBURÐIR

04.10.2024

föstudaginn

21:00

Miðaverð

6.990 kr.

05.10.2024

laugardaginn

21:00

Miðaverð

6.990 kr.