Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Týnt lykilorð?

Hr. Eydís

Hr. Eydís

29.06.2024 21:00
Græni Hatturinn, Hafnarstræti, 600 Akureyri

Alvöru ´80s partý með Hr. Eydís
Gestasöngvari Erna Hrönn Ólafsdóttir.

Hljómsveitin Hr. Eydís sem sérhæfir sig í bestu 80´s lögunum kemur aftur á Græna hattinn og blæs til alvöru ´80s veislu laugardaginn 29.júní

Þvílík sem stemningin var síðast og ekki verður hún minni núna.

Komdu og upplifðu þennan skrautlega áratug í allri sinni dýrð, viðburð sem enginn sannur 80´s aðdáandi ætti að láta framhjá sér fara. Hljómsveitina skipa þeir Örlygur Smári, Páll Sveinsson, Ríkharður Arnar og Jón Örvar Bjarnason.

Ath. að uppselt var í síðusta ´80s partý hjá Hr. Eydís.

Ef þú vilt forsmekkinn af lögunum þá er rás félaganna á YouTube hér: https://www.youtube.com/@eydisband