Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Týnt lykilorð?

MADNESS

MADNESS

01.06.2024 19:30
Engjavegur 8, 104 Reykjavík

Nordic Live Events kynnir í samstarfi við Bauhaus, Víking Léttöl og Bylgjuna stórtónleika Madness

ATHUGIÐ! VIÐBURÐURINN FRESTAST TIL JÚNÍ 2025. NÝ DAGSETING VERÐUR KYNNT Á NÆSTU DÖGUM.

Madness er Íslendingum góð kunn enda hefur hún átt greiðan aðgang að viðtækjum landsmanna allt frá því að hún sló rækilega í gegn á áttunda áratug síðustu aldar. Sveitin heimsótti Ísland á Listahátíð 1986 og því löngu komin tími til að endurnýja kynnin á tónleikum hérlendis.

Madness mun framkalla magnaða „eitís“ veislu í Laugardalshöllinni og leika sína þekktustu smelli á borð við Our House, It Must Be Love, Baggy Trousers, House Of Fun, My Girl, Driving My Car, Wings Of A Dove og One Step Beyond en sveitin hefur átt mikilli velgengni að fagna frá því að hún kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1979. Tónleikar sveitarinnar þykja algjört partí og því von á að höllinni verði á iði.

Madness er komin saman aftur með upprunalegu meðlimum til að fylgja eftir nýrri plötu C’Est La Vie, þeirra þrettándu í röðinni. Frábær upphitun verður í boði þegar anddyrið opnar fyrir gleðiþyrstum gestum. Nánar um upphitunardagskránna þegar nær dregur.

Tryggðu þér miða strax og pússaðu dansskóna. Það verður tryllt stemning.

Framleiðsla: Nordic Live Events