MEIK og Ari Eldjárn
YOU WANTED THE BEST AND YOU GOT THE NÆSTBEST – MEIK!!!
KISS-heiðurshljómsveitin MEIK snýr aftur á svið eftir átta ára hlé og heldur kraftmikla tónleika á Ölveri föstudagskvöldið 27. mars 2026.
Á efnisskránni verða eingöngu lög með rokkgoðsögnunum í KISS, með sérstakri áherslu á okkar allra besta Ace Frehley. Það má því búast við sannkallaðri rokkveislu fyrir alla KISS-aðdáendur.
Allir meðlimir MEIK hafa einhvern tímann á lífsleiðinni verið forfallnir aðdáendur þessarar einstöku rokksveitar – og sumir eru enn með háan KISS-hita.
Sérstakur gestur kvöldsins er Ari Eldjárn, gallharður KISS-aðdáandi frá unga aldri, sem stígur á svið með hljómsveitinni.
MEIK hefur einnig fengið lof úr óvæntri átt, en Bruce Kulick, fyrrum gítarleikari KISS, lýsti meðlimum sveitarinnar í viðtali sem “the most talented group of musicians I have ever played with.”
Meðlimir MEIK eru:
- Magni Ásgeirsson – söngur
- Þráinn Árni Baldvinsson – gítar
- Jón Elvar Hafsteinsson – gítar
- Eiður Arnarsson – bassi
- Þorsteinn Gunnarsson – trommur
Sérstakur gestur:
Ari Eldjárn – gítar og söngur
📍 Staður: Ölver
📅 Dagsetning: Föstudagur 27. mars 2026
🕖 Húsið opnar: 19:00
🎸 Tónleikar hefjast: 20:00
Ekki missa af kvöldi fullum af klassískum KISS-lögum, krafti og hreinni rokkstemningu.