Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Queue illustration

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 sekúndur

Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Senda mér nýtt lykilorð!

NÝTT
ÞAU og Valborg Ólafs á Midgard

ÞAU og Valborg Ólafs á Midgard

05.06.2026 20:00
Midgard Basecamp, Dufþaksbraut 14, 860 Hvolsvöllur

Tvöföld tónleikaveisla á Midgard!

Tvær hljómsveitir – eitt kvöld!

Hljómsveitirnar ÞAU og Valborg Ólafs koma fram á Midgard Adventure/Base Camp föstudaginn 5. júní kl. 20:00
Fullkomið kvöld til að leyfa tónlistinni að taka þig í ferðalag sem er í senn ljúft og rokkað.

ÞAU eru söng- og leikkonan Rakel Björk og gítar- og trommuleikarinn Gaddi.
Tær rödd Rakelar mætir grófum gítarleik Gadda í frumsamdri tónlist við íslensk ljóð, þar sem áhrif úr rokki, indí, jazzi og poppi fléttast saman. Með looperum og fjölbreyttum effektum á raddir og hljóðfæri skapa ÞAU lifandi og óvæntan hljóðheim á sviði, þar sem aðeins tveir tónlistarmenn fylla salinn af tónlist.
ÞAU hafa sent frá sér plöturnar ÞAU taka Vestfirði og ÞAU taka Norðurland, sem hafa hlotið góðar viðtökur, og fylgt þeim eftir með tónleikum víða um land, meðal annars í Bæjarbíói og Hofi. Nú vinna ÞAU að þriðju plötunni, ÞAU taka Suðurland, og ætla að leggja land undir fót í sumar með tónleikaröðinni ÞAU spila í sumar! Sveitin kom nýverið fram á HEIMA í Hafnarfirði og heldur nú áfram ferðalaginu um landið.

Valborg Ólafs er texta- og lagahöfundur sem býr undir Eyjafjöllum og semur lög um lífið og eigin upplifanir. Á tónleikunum má búast við rólegri og notalegri stemningu, fallegum gítarlínum og lögum sem gott er að hlusta á og auðvelt er að gleyma sér í um stund. Ný lög eru farin að líta dagsins ljós og verða á þriðju plötu bandsins sem kemur út á þessu ári, þar á meðal nýjasta lagið „Breathe With Me.“
Með Valborgu á sviði verða Orri Guðmundsson á trommum, Elvar Bragi Kristjónsson á bassa og hljómborð, Baldvin Freyr Þorsteinsson á gítar og Hróðmar “Hrói” Sigurðsson á sleðagítar. Saman skapa þau hlýjan hljóðheim þar sem indie-folk mætir smá country-vibe-i.