Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Queue illustration

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 sekúndur

Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Senda mér nýtt lykilorð!

NÝTT
Tónleikar með Gosa í Kómedíuleikhúsinu

Tónleikar með Gosa í Kómedíuleikhúsinu

19.06.2026 20:00
Kómedíuleikhúsið Haukadal, Svalvogavegur , 471 Dýrafjörður

Gosi mætir í Kómedíuleikhúsið í Haukadal með einlæga, lifandi og sérstaka tónleika þar sem söngvaskáldið Andri Pétur stígur á svið með gítarinn sinn og flytur lög úr eigin sarpi.

Á tónleikunum má meðal annars heyra lög af annarri breiðskífu Gosa, Á floti, sem kom út á síðasta ári, auk þess sem ekki er ólíklegt að nokkur ný lög fái að slæðast með af væntanlegri plötu, Af fjöllum, sem nú er í vinnslu.

Saga Gosa hófst árið 2012 á námsárum Andra í Hollandi, þá sem eins manns rafpoppsveit. Síðan hefur Gosi vaxið, dafnað og á köflum talið allt að átta manns á sviði. Í Haukadal verður stemningin hins vegar nánari og persónulegri, þar sem Gosi mætir berskjaldaður með gítarinn, röddina og lögin í forgrunni.

Tónlist Gosa má lýsa sem indie poppi eða skrýtipoppi með fjölbreyttum áhrifum, þar sem þjóðsagnarverur, draumar, haf, fjöll og íslensk sérviska fléttast saman í einstakan tónheim.

Pæklaður í djúpinu, marineraður undir Gleiðarhjalla og ferskur eins og hafgola.

Komdu og upplifðu Gosa í návígi í einstöku umhverfi Kómedíuleikhússins í Haukadal.