Gospeltónleikar
Gospeltónleikar í Lindakirkju
Sunnudaginn 26. apríl kl. 16:00 verður sannkölluð tónlistarveisla í Lindakirkju þegar gospelnámskeiði helgarinnar lýkur með glæsilegum tónleikum.
Undir leiðsögn hins öfluga og reynslumikla stjórnanda, Roderick Giles, hafa þátttakendur unnið saman að því að efla söng, samhljóm og framkomu og nú gefst einstakt tækifæri til að njóta afrakstursins.
Fram koma:
✨ Kór Lindakirkju
✨ Gospelkór Glerárkirkju
✨ Kór Njarðvíkurkirkju
✨ Vox Gospel
✨ Gospelkór Fíladelfíu
Sumir kórarnir flytja lög einir auk þess sem flutt verða kraftmikil sameiginleg gospelverk sem æfð hafa verið yfir helgina með hljómsveit hússins.
🎟 Miðaverð: 2.900 kr.
🕒 Húsið opnar: kl. 15:30
Komdu og upplifðu gleði, kraft og innblástur gospeltónlistarinnar, tónleikar sem fylla hjartað af lífi! 🎶