Hang tight – this event is 🔥!

Queue illustration

Your queue position:
Next update in: 30 seconds

We are handling a lot of requests, so you’ve been placed in a queue. You will get access automatically once it’s your turn.

Sign up

Terms

Welcome back

Close

Reset password

NEW EVENT
PottÞétt Blika - 90’s veisla

PottÞétt Blika - 90’s veisla

24/09/2026 19:30
Gamla Bíó, Ingólfsstræti 2a, 101 Reykjavík

Verið velkomin á PottÞétt tímaflakk! 

Spólum til baka og segjum skilið við fullorðinsáhyggjur, snjallsímaáreiti og samfélagsmiðla um stund. Hér býðst einstakt tækifæri til að endurupplifa tíma vasadiskóa, sveitaballa og leiðangra eftir nýjustu geisladiskunum. Dragið fram gömlu Buffalo skóna og hristið rykið af Adidas smellubuxunum, köflóttu skyrtunni og magabolnum, því þið viljið ekki missa af þessari veislu!

Kvennakórinn Blika, undir stjórn Margrétar Eir, mun ásamt hljómsveit og góðum gestum leiða áheyrendur í nostalgíuferðalag aftur til áratugar sem ól af sér popp-, grunge- og danstónlist sem lifir enn í hjörtum okkar.  Þið verðið ekki svikin með stærstu slögurum Britney Spears, Cranberries og Backstreet Boys, að ógleymdri Björk og  íslenskri tónlistarelítu tímabilsins. 

Hljómsveitarstjóri: Ingvar Alfreðsson
Sérstakir gestir: Dagur Sigurðsson og Stefanía Svavarsdóttir 

Aðeins eitt kvöld og takmarkaður sætafjöldi!

Barinn verður opinn og því 20 ára aldurstakmark, nema í fylgd forráðamanna.