KAKÓ & HAPÉ
Kvöldstund með Huni Kuin & Lovísu
Einstök og helg kvöldstund í Reykjavík, Bolholti 4. 4 hæð.
Ein heilög planta til að opna hjartað.
Önnur til að hreinsa hugann og jarðtengja andann.
Það er okkur mikill heiður að taka á móti Pajé (shaman) og Txanas (tónlistarmönnum) frá Huni Kuin, sem koma alla leið úr frumskógum Amasónsvæðisins til að deila með okkur söngvum, bænum og athafnahefðum sínum.
Kvöldið hefst með kakóathöfn undir leiðsögn Lovísu. Þar gefst rými til að hægja á, beina athyglinni inn á við og dýpka tenginguna við líkama og hjarta. Kakóið verður hluti af rólegri og nærandi byrjun kvöldsins og undirbýr hópinn fyrir það sem tekur við.
Í kjölfarið mun Pajé leiða Hapé-athöfn samkvæmt hefðum Huni Kuin.
Athöfninni fylgja bænir og lifandi tónlist frá Txanas — söngvar fullir af krafti, gleði og tengingu við menningu og hefðir fólksins úr hjarta Amasónsvæðisins.
Kvöldstund fyrir þá sem vilja staldra við, skapa tengsl og njóta dýrmætrar samveru með okkar einstöku gestum.