Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Queue illustration

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 sekúndur

Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Senda mér nýtt lykilorð!

NÝTT
Draugar Dýrafjarðar (6 sýning)

Draugar Dýrafjarðar

ágúst, 2026

🎭 Sumarsýning Kómedíuleikhússins í Haukadal, Dýrafirði

Kómedíuleikhúsið frumsýnir í sumar hið magnaða leikverk Draugar Dýrafjarðar eftir Elfar Loga Hannesson.

Leikritið er krassandi og áhrifamikið verk byggt á mögnuðum og dagsönnum draugasögum úr Dýrafirði. Skyggnst verður inn í handanheima þar sem einhverjir magnaðustu draugar fjarðarins koma við sögu. Fremst í flokki er Gunnhildur, sem gekk aftur lengur en flestir aðrir draugar landsins, nærri eina öld.

Sýningin fer fram á sjálfum söguslóðunum í leikhúsinu í Haukadal í Dýrafirði, þar sem draugagangur hefur lengi verið sagður hvað mestur og magnaðastur á Vestfjörðum.

Hér er á ferðinni óvænt og áhrifamikil leiksýning sem mun án efa veita gestum viðeigandi hroll.

🎭 Höfundur og leikari: Elfar Logi Hannesson
👗 Búningar: Sunnefa Elfarsdóttir
💡 Lýsing: Sigurvald Ívar Helgason
🎬 Leikmynd og leikstjórn: Marsibil G. Kristjánsdóttir

📅 Sýningar
• Sýning, 4. ágúst kl. 20:00.
• Sýning, 18. ágúst kl. 20:00.

Vertu viðbúin(n) ógleymanlegri kvöldstund á söguslóðum drauganna. 


VIÐBURÐIR

04.08.2026

þriðjudaginn

20:00

Miðaverð

4.900 kr.

18.08.2026

þriðjudaginn

20:00

Miðaverð

4.900 kr.