Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Queue illustration

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 sekúndur

Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Senda mér nýtt lykilorð!

NÝTT
Extreme Chill Festival 2027 - Early Bird Miðasala hafin

Extreme Chill Festival 2027 - Early Bird Miðasala hafin

11.02.2027 19:30
Miðbær Reykjavíkur, 11-13 febrúar , 101 Reykjavík

Þriggja daga alþjóðleg hátíð raf- og tilraunatónlistar í Reykjavík, þar sem íslenskt og erlent tónlistarfólk mætist í íslenskum vetri. Myrkrið, norðurljósin og vetrarstemning borgarinnar skapa hátíðinni einstaka umgjörð. 

Extreme Chill Festival 2027

11.–13. febrúar · Reykjavík 

Tónlistarhátíðin Extreme Chill fer fram í Reykjavík dagana 11.–13. febrúar 2027, og er þetta í 18. sinn sem hátíðin er haldin. Hátíðin færist nú frá september yfir í dimmasta hluta vetrarins. Þannig fær hún enn skýrari sérstöðu og nýtur þess einstaka andrúmslofts sem ríkir í Reykjavík á þessum árstíma. Myrkrið, norðurljósin og íslenskt vetrarlandslag verða hluti af upplifuninni og kallast á við tónlistina og sjónræna miðla. 

Extreme Chill er ein af langlífustu tónlistarhátíðum landsins og hefur verið haldin óslitið síðastliðin 17 ár. Hún hefur vakið athygli víða um heim og skipar mikilvægan sess í íslensku tónlistarlífi. Sérstaða hennar er áherslan á tilraunakennda tónlist, raftónlist og sveimtónlist. Hátíðin og starfið í kringum hana hafa getið af sér fjölda útgáfa, tónleika og tónleikaferða erlendis, auk samstarfs við tónlistarfólk og ógleymanlegra uppsetninga á hátíðum bæði hér heima og erlendis. 

Early Bird hátíðarpassi: 14.900 kr.
Passinn gildir alla þrjá dagana. 

Dagskráin verður kynnt föstudaginn 18. desember.