Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Queue illustration

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 sekúndur

Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Senda mér nýtt lykilorð!

NÝTT
Frá fjalli til fjöru, Láglendisganga

Frá fjalli til fjöru, gönguhátíð á Akranesi

júní, 2026

Gönguhátíðin Frá fjalli til fjöru fer fram á Akranesi laugardaginn 20. júní 2026. Um er að ræða skemmtilegan og fjölbreyttan gönguviðburð þar sem þátttakendur geta valið leið eftir getu og áhuga. Hátíðin sameinar fallega náttúru, hreyfingu og góða stemningu þar sem gengið er frá Akranesvita upp að og á Akrafjall og aftur niður að sjó, í einstöku umhverfi Akraness.

Boðið er upp á þrjár mismunandi gönguleiðir. Hálendisleiðin sem hefst kl. 9:00 er lengsta leiðin þar sem genginn er hringur á Akrafjalli og heildarvegalengdin er rúmir 30 km. Láglendisleiðin sem hefst kl. 14:00 er styttri leið, um 15 km, þar sem gengið er um láglendið að Akrafjalli en göngu á fjallið er sleppt. Spölur er fyrir þá sem vilja taka þátt í stuttum hlutum göngunnar (100 m - 3 km) þ.e. ganga stuttan kafla. Ekki er nauðsynlegt að skrá sig í þann hluta en áhugasamir geta greitt 2000 kr framlag hér á síðunni til að styðja við viðburðinn.

Allir þátttakendur geta hafið göngu eða hætt á mismunandi stöðum á leiðinni eftir því hvað hentar hverjum og einum. Einnig verður hægt að koma inn í gönguna á auglýstum stöðum í upphafi og lok hennar og þannig ganga með stuttan spöl.

Innifalið í þátttökugjaldi eru merkingar á leiðum, leiðsögn og einkenni göngunnar. Viðburðurinn hentar vel fyrir göngugarpa sem og þá sem vilja njóta útiveru í góðum félagsskap.

Frítt er fyrir börn upp að 12 ára, en ekki er gert ráð fyrir börnum yngri en 12 ára í göngu á Akrafjall.

📍 Upphaf: Við Akranesvita, Breiðinni á Akranesi
🕘 Göngur hefjast kl. 09:00 og 14:00

Miðaverð:

  • Hálendisleið: 6.000 kr
  • Láglendisleið: 5.000 kr
  • Spölur / stuðningsframlag: 2.000 kr
  • Frítt fyrir börn (12 ára og yngri)

Frekari upplýsingar um viðburðinn má finna á Facebook:  https://www.facebook.com/events/917973827421704 

VIÐBURÐIR

Frá fjalli til fjöru, Hálendisganga

Við Akranesvita, Breiðinni, Akranesi

20.06.2026

laugardaginn

09:00

Miðaverð

6.000 kr.

Frá fjalli til fjöru, Láglendisganga

Við Akranesvita, Breiðinni, Akranesi

20.06.2026

laugardaginn

14:00

Miðaverð

5.000 kr.

Frá fjalli til fjöru, Spölur, 100 m.

Við Akranesvita, Breiðinni, Akranesi

20.06.2026

laugardaginn

14:00

Miðaverð

2.000 kr.