Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Queue illustration

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 sekúndur

Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Senda mér nýtt lykilorð!

NÝTT
Look North – Djasstónleikar í Edinborgarhúsinu

Look North – Djasstónleikar í Edinborgarhúsinu

01.09.2026 20:30
Edinborgarhúsið, Aðalstræti 7, 400 Ísafjörður

Fransk-breska djasstríóið Look North kemur fram í Edinborgarhúsinu 1. september.

Gary Brunton, Daniel Beaussier og Célestine de Williencourt mynda spennandi nýtt tríó þar sem fjölhljóðfæraleikur, söngur og spunaleikur skipa stóran sess. Tónlist þeirra er frásagnarkennd og ljóðræn, og býður upp á ferska sýn á samtímajazz og skapandi spunatónlist.

Fyrsta plata tríósins, Look North, er ferðalag um frumsamin verk sem kalla fram víðáttur norðursins og stemningu opins landslags. Tónlistin er um leið boð um uppgötvun og ferð inn í hljóðheim sem sameinar næmni, frelsi og sterka melódíska tilfinningu. Gestur á tónleikunum er trommuleikarinn Einar Scheving.

Upplýsingar um viðburðinn:

  • Hvenær: Þriðjudaginn 1. september kl. 20:30
  • Hvar: Edinborgarhúsinu, Ísafirði
  • Aðgangseyrir: 3.500 kr.

Viðburðurinn er í samstarfi við Jazzhátíð Reykjavíkur og styrktur af Uppbyggingarsjóði Vestfjarða og Styrktarsjóði hafna Ísafjarðarbæjar.