MEIK og Ari Eldjárn
YOU WANTED THE BEST AND YOU GOT THE NÆSTBEST – MEIK !!!
MEIK snýr aftur á svið eftir átta ára hlé!
KISS heiðurs-hljómsveitin MEIK blæs til tónleika á Ölveri föstudagskvöldið 30. október.
Þetta verða fyrstu tónleikar sveitarinnar í átta ár og á efnisskránni verða eingöngu lög KISS, með sérstakri áherslu á okkar allra besta Ace Frehley.
Allir meðlimir MEIK hafa einhvern tímann á lífsleiðinni verið forfallnir aðdáendur þessarar einstöku rokksveitar – og sumir eru enn með háan KISS-hita.
Speis-Ari Eldjárn hefur verið gallharður KISS-maður frá unga aldri og mun án efa setja sinn einstaka og kómíska svip á kvöldið.
Meðlimir MEIK koma úr ýmsum áttum og mynda þéttan og reynslumikinn hóp:
Magni Ásgeirsson – söngur
Þráinn Árni Baldvinsson – gítar
Jón Elvar Hafsteinsson – gítar
Eiður Arnarsson – bassi
Þorsteinn Gunnarsson – trommur
Ari Eldjárn – gítar og söngur
Bruce Kulick, fyrrum gítarleikari KISS, hefur lýst MEIK sem:
“the most talented group of musicians I have ever played with.”
Þetta verður kvöld fyrir alla KISS-aðdáendur – og alla sem vilja alvöru rokktónleika.