Töfrasýning fjölskyldunnar
Töfrasýning fyrir alla fjölskylduna!
Einn skemmtilegasti töframaður landsins verður með töfrasýningu í Kómedíuleikhúsinu Haukadal laugardaginn 14. september Fjölskyldusýning sem allir hafa gaman af!
Ný töfrabrögð, þar sem hlutir fljúga, birtast og hverfa!
Skyldumæting fyrir börn á aldrinum 3-103 ára
Bara gaman!!
- Jón Víðis hefur skemmt landanum frá aldamótum með töfrabrögðum sem fá fólk til að taka andköf og brosa svoldið!
- Að sögn töframannsins var töfrasýning hans einn af 23 skemmtilegustu viðburðunum á Actinu í ár enda þekktur fyrir hógværð! Nú mætir hann með ný töfrabrögð, tilbúinn að koma fólki á óvart og kitla hláturtaugarnar!
- Hefur þú séð konu sagaða í tvennt?? [kem nú sennilega ekki með það á barnasýningu 🙂 ]
- Sýning sem allir hafa gaman af!
- Það er ekkert gaman nema það sé skemmtilegt!