BREK í Krúttinu, Blönduósi
Hljómsveitin BREK heldur tónleika í Krúttinu á Blönduósi föstudaginn 7. ágúst kl. 20:00.
Ný plata kemur út í haust og mun sveitin spila eitthvað af nýjum lögum í bland við efni af fyrri plötu, sem og léttar ábreiður.
BREK hefur vakið verðskuldaða athygli síðustu ár en sveitin var meðal annars tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna í flokki þjóðlagatónlistar tvö ár í röð og hlaut verðlaunin fyrir plötu ársins í þjóðlaga- og heimstónlist árið 2022 fyrir sína fyrstu plötu.
Síðan þá hefur Brek komið fram víða um heim, á hátíðum m.a. í Bandaríkjunum, Finnlandi, Noregi, Danmörku og Írlandi.
Á tónleikum vilja meðlimir sveitarinnar skapa áhugaverða stemningu í hljóðfæraleik sínum, auk þess sem lögð er áhersla á fjölskrúðuga notkun íslenskrar tungu í textagerð.
Nánar um BREK:
https://www.brek.is