Bíðið fast – þessi viðburður er 🔥!

Queue illustration

Staða þín í biðröð:
Næsta uppfærsla í: 30 sekúndur

Við erum að vinna úr mörgum beiðnum, þannig að þú hefur verið settur í biðröð. Þú færð aðgang sjálfkrafa þegar það er komið að þér.

Nýskráning

Skilmálar

Velkomin aftur

Loka

Senda mér nýtt lykilorð!

NÝTT
Dj Krush - 3 september í Gamla Bíó

Dj Krush - 3 september í Gamla Bíó

03.09.2026 20:00
Gamla Bíó, Ingólfsstræti 2a, 101 Reykjavík

DJ KRUSH – Live í Gamla Bíó
3. september 2026 | Gamla Bíó, Reykjavík 

Þann 3 september 2026 stígur goðsögnin Dj Krush á svið í Gamla Bíó. 

DJ Krush hóf sólóferil sinn snemma á tíunda áratugnum. Hann nýtur mikillar viðurkenningar fyrir útgáfur sínar hjá breska útgáfufyrirtækinu Mo’ Wax og er frumkvöðull í trip-Hop, raftónlist, og abstrakt hip-hop. Hann er í dag einn af virtustu listamönnum Japans. 

Árið 1994 gaf hann út sína fyrstu sólóplötu, KRUSH. Sama ár vakti önnur plata hans, Strictly Turntablized, sem kom út hjá breska útgáfufyrirtækinu Mo’ Wax, mikla athygli, sérstaklega í Evrópu. Í kjölfarið fylgdi röð áhrifamikilla útgáfa: Meiso (1995), MiLight (1996), Kakusei (1998) og Ki-Oku (1996), samstarfsplata með hinum goðsagnakennda trompetleikara Toshinori Kondo. 

Sólóverk hans hafa ítrekað náð góðum árangri á innlendum og alþjóðlegum vinsældalistum. Útgáfa hans frá 2001, Zen, hlaut AFIM Indie-verðlaunin fyrir „Bestu raftónlistarplötuna“, sem oft eru kölluð „Indie Grammy“-verðlaunin. Sem endurhljóðblandari (remixer) hefur DJ KRUSH unnið með Herbie Hancock, k.d. lang og Ronnie Jordan, auk þess að leggja sitt af mörkum til verkefna með Miles Davis, Black Thought, Galliano, Pete Rock, Coldcut og fleirum og þannig farið yfir mörk tónlistarstefna og landamæra með góðum árangri. Hann gekk einnig til liðs við ofurhóp Bill Laswell, Method of Defiance, og kom þar fram með listamönnum á borð við Bernie Worrell og Toshinori Kondo. 

Þessi viðburður er partur af Extreme Chill hátíðinni sem fer fram í Reykjavik dagana 3–6 september 2026

Miðasala inn á midix.is og er takmarkað magn miða í boði. 🎟️