Hapé messa Huni kuin
Með opnu hjarta bjóðum við ykkur velkomin í einstaka helgiathöfn þar sem tvær heilagar ár fléttast saman í Fríkirkjunni í Reykjavík.
Athöfnin er haldin í djúpri virðingu fyrir hefð Huni Kuin þjóðarinnar og hefð Santo Daime og er leidd af Pajé Pae Nawa. En hann er andlegur leiðtogi, kennari og frumbyggjalæknir frá Huni Kuin þjóðinni í Amazon, Brasilíu. Hann deilir helgum kvæðum og lækningum, fróðleik um skóginn í gegnum Huni kuin Hapé athöfn í bæn.
Hapé er jurtablanda úr skóginum sem Pajé blæs í nef þeirra sem það vilja þiggja.
Með honum eru Txana Ury og Txana Mêku, helgir tónlistarmenn sem eiga rætur sínar að rekja bæði frá Huni Kuin og Santo Daime. Þeir munu leiða okkur í gegnum bænalög og söngva frá báðum hefðum.
Í Santo Daime hefðinni er boðskapurinn og tengingin við hið helga móttekin í gegnum sérstaka Santo Daime sálma, sem tileinkaðir eru Jesú Kristi, Maríu og Jósef.
Þetta er ekki blanda af hefðum. Hvor heldur sínu sjálfstæði og helga rými. Tilgangurinn er að byggja brú – samtal milli tveggja andlegra vega sem eiga báðar rætur sínar að rekja til skógarins með kærleik, auðmýkt og ábyrgð.
Þetta verður kvöld helgað bæninni, söngnum, samheldni og heilun. Kvöld þar sem við sameinumst í hjarta Fríkirkjunnar í Reykjavík til að minna okkur á tengsl okkar við jörðina, himininn og hvert annað.
Öll hjartanlega velkomin.
Amazonia Iceland Alliance
Fríkirkjan í Reykjavík