NÝTT
Lokahóf Akstursíþróttasambansins
31.10.2026 19:00
Golfskálinn, Jaðar , 600 Akureyri
Akstursíþróttasamband Íslands heldur glæsilegt lokahóf á Akureyri laugardaginn 31. október 2026.
Á kvöldinu verða Íslandsmeistarar ársins 2026 krýndir, auk þess sem veittar verða viðurkenningar til sjálfboðaliða og annarra sem hafa lagt sitt af mörkum til akstursíþrótta á árinu.
Veislustjórar kvöldsins verða þeir Brynjar Schiöth og Jónas Freyr Sigurbjörnsson, sem munu leiða gesti í gegnum hátíðlega og skemmtilega dagskrá.
Húsið opnar kl. 17:30
Borðhald hefst kl. 19:00
Miðaverð: 13.500 kr.
Við hlökkum til að fagna góðu keppnisári og eiga frábært kvöld saman á Akureyri.