Stórtónleikar Timmy Trumpet
TIMMY TRUMPET SNÝR AFTUR TIL ÍSLANDS! MIÐASALA HEFST 10. SEPTEMBER
Laugardaginn 12. júní 2027 verða Ásvellir í Hafnarfirði að stærsta dansgólfi Íslands!
Hinn heimsþekkti Timmy Trumpet snýr aftur til Íslands og nú verður engu til sparað. Einn stærsti og kraftmesti skemmtikraftur raftónlistarsenunnar mætir á Ásvelli á risatónleika sem þú vilt ekki missa af.
🎺 TIMMY TRUMPET
💥 BIRNIR
🔥 SAINT PEPTE
⚡ DR. VICTOR
… og fleiri atriði verða kynnt síðar!
Timmy Trumpet þarf vart að kynna fyrir íslenskum tónlistarunnendum. Hann hefur tryllt lýðinn á stærstu sviðum heims, þar á meðal Tomorrowland, og Íslendingar hafa áður fengið að kynnast þeirri einstöku orku sem fylgir honum á sviði. En þetta verður enn betra. Íslensku upphitunaratriðin gera dansgólfið sjóðheitt áður en Timmy tekur við taumunum og setur allt á hliðina.
STÆRSTA SUMARPARTÝ 2027
Á Ásvöllum verður öllu tjaldað til svo upplifunin verði engu líkari. Við erum að tala um eitt stærsta partý ársins 2027 – kvöld sem verður erfitt að toppa. Aldurstakmark er 20 ára.
🔥 TIMMY TRUMPET ER AÐ KOMA HEIM! ERT ÞÚ TILBÚIN/N?