Sumartónlistarhátíð Hverafugl í Hveragerði
Hverafugl er ný sumartónlistarhátíð í Hveragerði sem fer fram dagana 26. til 28. júní 2026.
Á hátíðinni mætast samtímatónlist, kammerpopp, hljóðlist, orgeltónlist, nýsköpun og staðbundin tónlistarhefð í fjölbreyttri dagskrá þar sem Hveragerði sjálft verður hluti af upplifuninni. Tónleikar og viðburðir fara fram víðsvegar um bæinn, meðal annars í Hveragerðiskirkju, sal Grunnskólans í Hveragerði, Listasafni Árnesinga og Leikfélaginu í Hveragerði.
Meðal þeirra sem koma fram á hátíðinni eru CAPUT, Heiða Árnadóttir, Jónas Sigurðsson, Pétur Nói Stefánsson, Halldór Smárason, KIMI Ensemble og Melchior, auk þess sem flutt verða verk eftir íslensk tónskáld, nemendur Listaháskóla Íslands og tónlist tengd Hveragerði og nærsamfélaginu.
Hverafugl leggur áherslu á lifandi samtal milli tónlistar, staðar og áheyrenda. Dagskráin býður upp á einstaka tónlistarupplifun þar sem ólíkir stílar, rými og listform fléttast saman í nýrri hátíð sem sprettur úr menningu, náttúru og mannlífi Hveragerðis.
Dagskrá hátíðarinnar:
Hátíðapassi, gildir á alla viðburði: Sjá hér
CAPUT: Hróðmar og afleggjarar (Grunnskóli Hveragerðar): Sjá hér
Jónas Sig & Pétur Nói (Hveragerðiskirkja): Sjá hér
Heiða Árnadóttir – Áttir (Hveragerðiskirkja): Sjá hér
KIMI Ensemble og nemendur LHÍ (Listasafn Árnesinga): Sjá hér
Melchior (Leikhúsið): Sjá hér
Miðaverð á hátíðina:
Almennt hátíðarpassi: 12.000 kr.
Nemar, eldri borgarar og öryrkjar: 8.000 kr.
Einnig er hægt að kaupa miða á einstaka viðburði.
Frekari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar má nálgast á vefsíðunni:
https://www.hverafugl.com/dagskra-2026
Hverafugl er styrkt af Tónlistarsjóði, Uppbyggingarsjóði Suðurlands, Hveragerðisbæ og Hótel Örk.
Events
Grunnskólinn í Hveragerði - Salur, Skólamörk 6, 810 Hveragerði
Friday
20:00
3.000.-4.500 kr.
Hveragerðiskirkja, Brattahlíð 18, 810 Hveragerði
Saturday
11:00
3.000.-4.500 kr.
Hveragerðiskirkja, Brattahlíð 18, 810 Hveragerði
Saturday
22:00
3.000.-4.500 kr.
Leikfélag Hveragerðis (Leikhúsið), Austurmörk, 810 Hveragerði
Sunday
20:00
3.000.-12.000 kr.
12.000 kr.
8.000 kr.